Samfélagspælingar 9. bekkjar í Glerárskóla
Í febrúar og mars hefur 9. bekkur unnið að verkefni sem kallast sjálfboðaliðar. Þá velja krakkarnir sér framandi land sem þeir gætu hugsað sér að fara til sem sjálfboðaliðar. Þeir byrjuðu á að kynna sér landið, legu þess og sögu, trúarbrögð, siði, stöðu fólks og menntun og svo frv. og skrifa um það stutta ritgerð. Síðan útbjuggu þeir myndasýningu frá landinu þar sem þeir segja hver öðrum ferðasögu af ímynduðu ferðalagi til landsins sem sjálfboðaliðar. Löndin sem þeir völdu voru Guatemala, Fiji-eyjar, Kólombía, Brasilía, Haití, Sýrland, Filipseyjar, S-Afríku, Afganistan, Egyptaland, Perú, Kenya og Nigería. Sumir ætla að byggja hús fyrir húsnæðislausa og hjálpa fátækum fjölskyldum með börnin eða hjálpa fólki að byggja upp eftir jarðskjálfta. Einhverjir ætla að búa til vatnsbrunna eða að hjálpa til við að dreifa mat til fátækra og vinna á munaðarleysingjaheimilum.
______________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________
9. bekkur vann grenndarfræðiverkefni í desember og janúar. Þá kynntu þau sér ýmisar byggingar, félög eða starfsemi sem fram fer hér á Akureyri. Þau skrifuðu um það greinar og hvor bekkur gerði sitt tímarit. Þau má sjá hér fyrir neðan.
____________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________
______________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________
Hér fyrir neðan eru glærur úr valverkefni sem 9. bekkur vann á nóvember 2013. Verkefnið fólst í að kynna sér mannréttindi, finna upplýsingar um brot á þeim víðs vegar í heiminum, miðla þeim til samnemenda og taka þátt í umræðum í lokin. Markmiðin með verkefninu voru að nemendur lærðu að þekkja réttindi sín og gerðu sér grein fyrir hvenær þau væru brotin. Einnig að þjálfa gagnrýna hugsun, tjáningu á tilfinningum og skoðunum, framsögn og þjálfun í heimspekilegum umræðum.
____________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________
____________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________
Hér fyrir neðan eru valverkefni sem 9. bekkur vann í september 2013. Þeir gátu valið að vinna með staðalmyndir ýmiskonar eða lífstíl. Markmiðin með verkefninu voru að þjálfa gagnrýna hugsun, tjáningu á tilfinningum og skoðunum, framsögn og þjálfun í heimspekilegum umræðum. Einnig voru markmið að nemendur gerðu sér grein fyrir áhrifum staðalmynda og lífstíls á unglinga.
____________________________________________________________________________________________________________________________________________________________________
Texti með kynningu hér að ofan.
Myndbandið selst betur og fær fleiri áhorf á YouTube.
• Myndband með manneskju sem er fáklædd verður einfaldlega vinsælara heldur en með fólki í sem er klædd fötum
• Árið 2007 var gert kosið um 100 vinsælustu myndböndum í heiminum , 6 af top 10 var með myndband og texta þar sem er komið fram sem eitthvað kynferðislegt leikfang og að hún fái engu að stjórna.
• Það er lítill sem enginn munur á því að hvernig konur sýna sjálfa sig í myndböndunum sínum og hvernig men sína stúlkur í myndböndum
o (Nokkur dæmi um stúlkur sem sýna sig)
• Nicki Minaj , Miley Cyrus, Beyonce, Rihanna, Britney Spears og Lady Gaga eru Stúlkur sem hafa sýnt sinn eigin líkama í myndböndum. (slidea gegnum myndirnar, enda á GAGA)
• Svo er það Robin Thicke, Flo Rida, Pitbull, Flo Rida og margir margir fleiri sem sýna stúlkur fáklæddar í myndböndum sínum (slidea gegnum myndir enda á florida)
• Svo sýna strákar sig auðvitað líka (kveikja á myndbandinu)
• (svo eru það þessar stúlkur sem er í fötum í myndböndum sínum)
• Demi lovato, Adele sem situr allan tíman á stól, Taylor Swift og Anna Kendrick
• (það er líka strákar sem eru með fóllk í fötum í myndböndunum sínum eins og )
• Bruno Mars, One Direction þeir eru alltaf með klassísk dans move ., Rudimental er alltaf með einhvern söguþráð í myndböndböndunum sínum,